Haldið var upp á leyfisveitingu Svansvottunar á þriðju og fjórðu hæð í Borgartúni 27 sl. fimmtudag. Með leyfinu bætast þessar hæðir hússins við Svansvottunina og eru nú alls 7 af 8 hæðum byggingarinnar vottaðar.
Í þessum áfanga voru Svansvottaðir 1.719 m², en í fyrsta áfanga voru 3.509 m² vottaðir. Samtals eru því nú 5.228 m² í húsinu Svansvottaðir. Um er að ræða stærsta endurbótarverkefni sem hefur hlotið Svansvottun á Íslandi til þessa.
Til hamingju allir sem stóðu að verkinu.
Myndin hér að ofan er tekin af þessu tilefni og þar eru frá vinstri: Ellert Hreinsson arkitekt frá Former, Kristinn Freyr Ómarsson verkstjóri og rakavarnarfulltrúi Bygg, Karl Ómar Jónsson verkefnastjóri verksins hjá Bygg, Bergþóra Góa Kvaran sérfræðingur svansins, Rebekka Pétursdóttir og Marios Mylonas arkitektar hjá Former.
Hér má sjá hlekk á grein frá Umhverfis- og orkustofnun sem afhenti Byggingarfélaginu leyfið:


Frá vinstri: Karl Elí Þorgeirsson verkefnastjóri þjónustudeildar Bygg, Kristinn Freyr Ómarsson verkstjóri og rakavarnafulltrúi Bygg, Karl Ómar Jónsson verkefnstjóri verksins hjá Bygg, Bergþóra Góa Kvaran sérfræðingur Svansins, Elva Dögg Pálsdóttir mannauðsstjóri Bygg, Ágúst Helgason annar eigandi AJ raf, Sindri Snær Oddgeirsson verkefnastjóri Bygg.