Laugardaginn 7. júní 2025 var nýtt þjónustuverkstæði Landfara sýnt að Álfhellu 15 í Hafnarfirði. Um er að ræða rúmgóða og vel búna aðstöðu sem Landfari hefur tekið á leigu hjá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars. Á sama stað mun Byggingarfélagið jafnframt reka eigið þjónustuverkstæði fyrir vélar, tæki og lager.

Aðstaðan er hönnuð með hagkvæmni, öryggi og fagmennsku að leiðarljósi og uppfyllir allar helstu kröfur um nútímalegt og skilvirkt verkstæðisumhverfi.

Opnunin fór fram við hátíðlega athöfn þar sem fulltrúar Landfara tóku á móti gestum. Opnunin markar mikilvægt skref í þróun og uppbyggingu rekstrar beggja félaga.

Byggingarfélag Gylfa og Gunnars óskar Landfara velfarnaðar í nýju húsnæði og hlakkar til áframhaldandi trausts og árangursríks samstarfs að Álfhellu 15.

Hér má sjá myndir frá sýningunni:

Vefvinnsla og hönnun: ONNO ehf.