Fyrir Stuttu var undirritaður tímamótasamningur vegna kostunar á sýningum frá Formúlu 1 kappaksturinn á sjónvarpstöðinni Stöð 2 Sport. Það eru fyrirtækin BYGG, DHL, Lýsing og N1 sem munu færa íslenskum sjónvarpsáhorfendum Formúluna. Undirritunin fór fram í veglegri Formúluveislu sem haldin var í Perlunni að viðstöddum hátt í 500 manns. Við undirritunina voru Gylfi Ómar Héðinsson frá BYGG, Hermann Guðmundsson frá N1, Ari Edwald frá 365, Halldór Jörgensson frá Lýsingu og Shad Hallam frá DHL.

Gunnlaugur Rögnvaldsson umsjónarmaður Formúla 1 VIP partý Perlan Öskjuhlíð