Byggingarfélag Gylfa og Gunnars færði Ljósinu fjárstyrk í nóvember síðastliðnum en fjöldi starfsmanna hefur þurft að sækja sér þjónustu og endurhæfingu til Ljóssins í krabbameinsmeðferð.
Starfsemi Ljóssins gegnir afar mikilvægu hlutverki í bataferli þeirra sem greinast með krabbamein. Frá Ljósinu höfum við fengið hagnýt ráð um hvernig megi styðja við samstarfsfélaga sem greinist og að það sé gefandi að leggja sitt af mörkum í endurhæfingarstarfið.
Að lokum vill fyrirtækið hvetja önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama og styrkja góðgerðarmál eins og Ljósið, því krabbamein kemur jú okkur öllum við.