UPPLÝSINGAR
MYNDIR

Naustavör 60-66

54 rúmar og fallegar íbúðir konar í sölu á norðanverðu Kársnesi við sjávarbakkann. Íbúðirnar eru með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og eldhústækjum frá Ormsson. Íbúðirnar eru ýmist með góðum svölum eða stórum timburveröndum. Stæði í bílageymslu fylgja íbúðum.

Naustavör 60-66 er 4ra hæða fjölbýlishús með lyftu við Naustavör í Kópavogi staðsett örstutt frá smábátahöfninni, með glæsilegu sjávarútsýni úr flestum íbúðunum. Í húsinu eru 2ja til 4ra herbergja íbúðir.

Söluvefur verkefnisins er hér.

 

ÍBÚÐIR

54

STÆRÐIR

80.3-199.2 m²

BYGGINGARÁR

2024

Bygg

Naustavör 60-66

Íbúðirnar verða afhentar með vönduðum íslenskum innréttingum frá Brúnás og án gólfefna, þó verða flísar á baðherbergjum og þvottahúsum frá Parka. Rafmagns- og sjónvarpslögn fylgir frágengin og verður mynddyrasími með einu símtóli í íbúð.

Sameign verður frágengin utan sem innan og í sameign verður vönduð lyfta. Anddyri verður flísalagt en stigar og stigapallar teppalagðir. Gangstéttar við húsið verða með snjóbræðslukerfi skv teikningum. Á baðherbergjum eru gólf flísalögð og veggir flísalagðir upp í loft. Þau verða búin vönduðum hreinlætistækjum, hitastýrðum blöndunartækjum, upphengdum salernum, sturtum með glerhlið.

Bryggjuhverfið á Kársnesi í Kópavogi er staðsett á fallegum stað á móti Nauthólsvíkinni, fjölskylduvænu og fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Siglingafélagið Ýmir er með aðstöðu við smábátahöfnina og er það iðandi af lífi. Í bryggjuhverfinu á Kársnesinu er gert ráð fyrir verði um 400 íbúðir. Flutt var í fyrstu íbúðir hverfisins á vormánuðum 2015.

Áætlað er að íbúðir við Naustavör 60-66 verði afhentar á tímabilinu október 2024 – mars 2025. Hús nr. 66 verður afhent í október 2024, hús nr. 64 verður afhent í nóvember 2024, hús nr. 62 verður afhent í febrúar 2025 og hús nr. 60 í mars 2025.

Arkitekt hússins er Gunnar Páll Kristinsson hjá RÝMA arkitektum.

Vefvinnsla og hönnun: ONNO ehf.