Við Ásvelli 3–19 rísa 104 fjölbreyttar íbúðir í sjö húsum sem mynda tvo klasa umhverfis skjólgóða, sameiginlega garða. Íbúðirnar verða frá 75,6 m² tveggja herbergja íbúðum upp í 154 m² fimm herbergja íbúðir. Byggðin lækkar til suðurs til að hleypa birtu inn í garðana og íbúðirnar.
Húsin verða álklædd lyftuhús með gólfhita, vönduðum innréttingum og heimilistækjum og með annaðhvort rúmgóðum svölum eða timburverönd. Fullfrágenginn sameiginlegur garður verður milli húsanna og bílastæði fylgir flestum íbúðum.
Íbúðirnar eru fjölbreyttar að stærð og gerð og ættu því að mæta ólíkum þörfum. Áhersla er lögð á bjart og vel skipulagt rými, góða nýtingu á hvern fermetra og aukin þægindi. Íbúðirnar eru meðal annars útbúnar með gólfhita, fataherbergjum í flestum íbúðum, vönduðum innréttingum og heimilistækjum auk þess eru annaðhvort rúmgóðar svalir eða timburverönd við hverja íbúð.
104
2023-2026

Ásvellir 3-19 eru á fjölskylduvænum stað þar sem auðvelt er að sinna sínum daglegu erindum. Skólar, leikskólar, matvöruverslanir og önnur þjónusta eru í næsta nágrenni. Miðbær Hafnarfjarðar er einnig skammt undan og góð tenging er við stofnbrautir sem gerir samgöngur til og frá hverfinu einfaldar.
Íþróttamiðstöð Hauka, Ásvallalaug og World Class á Tjarnarvöllum eru í göngufæri og býður upp á gott aðgengi að fjölbreyttu íþrótta-og tómstundastarfi sem gerir íbúum kleift að flétta hreyfingu og heilsurækt inn í daglegt líf.
Umhverfið einkennist af rólegri byggð og nálægð við opin svæði og fallega náttúru. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja njóta þæginda borgarlífsins án þess að fórna kyrrð, útivist og góðu nærumhverfi.

Guðmundur Gunnlaugsson, arkitekt hjá Archus, segir hér nánar frá hugmyndafræðinni, hönnuninni og þeim gæðum sem einkenna verkefnið.













