
Jafnlaunastefna Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf. (kt. 681290-2309) nær til alls starfsfólks og er órjúfanlegur hluti af launastefnu fyrirtækisins. Jafnlaunastefnan felur í sér að jafnréttis sé gætt í launamálum starfsfólks og að allt starfsfólk hafi jafna möguleika, óháð kyni, aldri, kynþætti og öðrum ómálefnalegum breytum.
JAFNLAUNASTEFNA
Jafnlaunastefna Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf. (kt. 681290-2309) nær til alls starfsfólks og er órjúfanlegur hluti af launastefnu fyrirtækisins.
Jafnlaunastefnan felur í sér að jafnréttis sé gætt í launamálum starfsmanna og að allir starfsmenn eigi jafna möguleika, óháð kyni, aldri, kynþætti og öðrum ómálefnalegum breytum. Fyrirtækið skuldbindur sig til að vinna að stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum. Framkvæmdastjórar bera ábyrgð á Jafnlaunastefnunni og Jafnlaunakerfinu.
Mannauðsstjóri er tilnefndur fulltrúi fyrirtækisins varðandi jafnlaunakerfi og er ábyrgur fyrir viðhaldi þess í samræmi við Jafnlaunastaðalinn ÍST 85.
Markmið fyrirtækisins er að vera vinnustaður sem býr vel að starfsfólki og að jafnlaunakerfi standist kröfur Jafnlaunastaðalsins ÍST 85.
Til þess að ná settum markmiðum mun Byggingarfélag Gylfa og Gunnars:
JAFNRÉTTISÁÆTLUN
Markmið jafnréttisáætlunar Byggingarfélags Gylfa og Gunnars hf. er að tryggja jafnrétti kynjanna og að allir hafi jöfn tækifæri til að nýta starfskrafta sína óháð kyni. Mikilvægt er að stjórnendur og starfsfólk sé meðvitað um mikilvægi jafnréttis í daglegum störfum, í stefnumótun og í allri ákvarðanatöku. Starfsfólk Bygg hf. ber sameiginlega ábyrgð á að gæta að jafnrétti.
Jafnréttisáætlunin byggir á lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Jafnréttisáætlun Bygg hf. gildir fyrir allt starfsfólk og miðar að því að Bygg hf. sé eftirsóknarverður vinnustaður þar sem jafnrétti og jafnræði ríki. Jafnréttisstefna er kynnt almenningi á heimasíðu félagsins.
Launajafnrétti
Starfsfólk Bygg hf. nýtur sömu kjara fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf, sbr. 6. gr. jafnréttislaga. Þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðunum fela ekki í sér kynjamismunun.
Ráðningar, þjálfun og fræðsla
Laus störf hjá Bygg hf. skulu standa jafnt körlum, konum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá, sbr. 1.mgr. 12.gr. jafnréttislaga. Jafnréttissjónarmið eru metin til jafns við önnur mikilvæg sjónarmið sem ráða við ráðningar og stöðuveitingar. Tryggja skal að allir standi jafnfætis er varðar framgang í starfi, þjálfun, fræðslu og verkefnaúthlutun.
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Starfsfólki er gert kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu, óháð kyni, sbr. 13.gr. jafnréttislaga, svo sem með sveigjanlegum vinnutíma eða annarri vinnuhagræðingu, eftir því sem við verður komið og þörf er á. Starfsfólk skal njóta sveigjanleika til að sinna fjölskyldu sinni.
Starfsfólk er hvatt til að nýta sér rétt sinn til fæðingar- og foreldraorlofs. Öllum skal gert auðvelt fyrir að koma til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða úr leyfi frá vinnu vegna óviðráðanlegra brýnna fjölskylduaðstæðna. Að auki skulu slíkar aðstæður ekki hafa neikvæð áhrif á ákvarðanir um framgang viðkomandi í starfi.
Einelti, kynbundin áreitni, kynferðisleg áreitni og kynbundið ofbeldi
Stjórnendum ber skylda að skapa vinnuskilyrði sem líða ekki einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundna eða kynferðislega áreitni eða ofbeldi á vinnustaðnum. Þeim ber skylda að taka á málum og fylgja stefnu og verklagi Bygg hf.
Vefvinnsla og hönnun: ONNO ehf.