Þú þarft Flash viðbótina til þess að geta skoðað þessa síðu. Þú getur nálgast hana hér: Ná í Flash 8






Þú þarft Flash viðbótina til þess að geta skoðað þessa síðu. Þú getur nálgast hana hér: Ná í Flash 8






Þú þarft Flash viðbótina til þess að geta skoðað þessa síðu. Þú getur nálgast hana hér: Ná í Flash 8






Þú þarft Flash viðbótina til þess að geta skoðað þessa síðu. Þú getur nálgast hana hér: Ná í Flash 8






Þú þarft Flash viðbótina til þess að geta skoðað þessa síðu. Þú getur nálgast hana hér: Ná í Flash 8






Þú þarft Flash viðbótina til þess að geta skoðað þessa síðu. Þú getur nálgast hana hér: Ná í Flash 8


Langalína 9-11 og Vesturbrú 1 í Sjálandshverfi í Garðabæ
Komnar eru í sölu þrjátíu lúxusíbúðir við Löngulínu 9-11 og Vesturbrú 1 í Sjálandshverfi í Garðabæ. Húsin eru þriggja og fjögurra hæða. Íbúðirnar eru frá um 83 fm. og upp í 180 fm. að stærð flestar með fallegu sjávarútsýni og stæði í bílageymslu. Íbúðirnar eru með vönduðum íslenskum innréttingum, hita í gólfi, borðplötum úr granít o.fl.

Sjálandshverfi er við Arnarnesvog í Garðabæ í fallegu umhverfi við sjávarsíðuna. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu. Ökuleiðir til og frá hverfinu eru greiðfarnar, stutt í Smáralind og miðbæ Garðabæjar. Vestast við voginn er náttúruleg fjara og í framhaldi af henni til austurs er gert ráð fyrir að komi sparkvöllur og sjóbaðsströnd sem snýr í sólarátt. Strandlengjan verður öll opin almenningi og gangstígur tengir hana og hverfið við miðbæ Garðabæjar. Í Sjálandi er gert ráð fyrir að muni rísa 2000 manna byggð. Flutt var í fyrstu íbúðir hverfisins á haustmánuðum 2004

Skoða söluvef.
 
Lundur í Fossvogsdal
Í byrjun maí 2005 var hafist handa við að rífa niður þau rúmlega 20 hús sem áður tilheyrðu bóndabýlinu Lundi. Þetta voru fjós, hlaða, íbúðarhús, fjölmargir kofar og geymslur sem mynduðu lítinn kjarna í Fossvoginum sem máttu muna sinn fífil fegurri. Framkvæmdir við gatna- og holræsagerð hófust þegar um haustið 2005 og munu
standa fram á mitt sumar 2006. Hverfið verður áfram kallað Lundur enda nafnið fallegt og virðulegt. Hér er vafalítið um eina af glæsilegustu staðsetningu íbúðarbyggðar á höfuborgarsvæðinu. Fossvogurinn með sinni einstakri fegurð, Öskjuhlíðin og rómaðar gönguleiðir tengja Lundinn saman á þann hátt að gott jafnvægi er á milli byggðar og náttúru. Hverfið er byggt upp með sex kjörnum og stórum grænum svæðum sem flæða
á milli þeirra. Stutt er í margvíslega þjónustu og afþreyingu. Smáralindin, Kringlan svo að ekki sé talað um menningarlífið í Gjánni s.s. Salinn og Gerðarsafn er steinsnar frá Lundi.

Í Lundi verða tæplega 400 íbúðir í fjölbýlis-, par- og raðhús sem munu styrkja og bæta þennan fallega vog. Fjölbýlishúsin eru 2ja til 10 hæða og stærð íbúða eru frá 60-200 fm. Við hönnun íbúðanna er haft að leiðarljósi að hafa þær bjartar og rúmgóðar með stórum gluggum sem ná niður í gólf og hita í gólfum. Flestar íbúðirnar hafa gott útsýni á þessum veðursæla stað þar sem sólargangur er langur.

Skoða söluvef.

 

 
Jónshús Sjálandshverfi í Garðabæ
Komnar eru í sölu 133 íbúðir fyrir fólk 60 ára og eldri í Sjálandshverfi í Garðabæ. Um er að ræða sex húsa þyrpingu sem nefnd eru „Jónshús“. Húsin eru 6 hæðir nema miðjuhúsið sem er 4 hæðir en í því verður þjónustusel.

Húsin standa á sameiginlegri lóð sem myndar sameiginlegt garðrými og opnast til sjávar. Í húsunum verða 2ja til 4ra herbergja íbúðir í ýmsum stærðum. Í öllum íbúðum eru 2 neyðarhnapar sem tengjast íbúð húsvarða og vaktmiðstöð.

Þjónustusel verður á 1. hæð í miðri þyrpingunni. Þar verður að finna matsal og margvísleg rými til þjónustu fyrir eldri borgara. Tenging verður við garð þar sem áætlað er að koma fyrir „púttgreen“ og dvalarsvæði sem hvetja fólk til útiveru.

Skoða söluvef.
 
17 júní torg
Húsið 17. júní-torg 1, 3, 5 og 7 er fjölbýlishús með 66 íbúðum, ætlaðar 50 ára og eldri.
Húsið skiptist í tvo hluta, 6 hæða byggingu með einu stigahúsi og L-laga 4 hæða byggingu með 3 stigahúsum. Öll stigahúsin eru sambyggð. Undir íbúðarhæðum eru sérgeymslur ásamt bílageymslu fyrir 49 bíla.

Um er að ræða vandaðar 65 fm til 150 fm íbúðir, sem flestum fylgir stæði í lokaðri bílageymslu. Í mörgum af stærri íbúðunum verður gestasnyrting og baðherbergi. Vandaðar íslenskar innréttingar eru í öllum íbúðum
svo og tæki að viðurkenndri gerð auk mynddyrasíma.

Lyftur eru í öllum stigahúsum er ganga niður í bílageymslu. Á aðalhurðum verða sjálfvirkir hurðaopnarar.

Húsið er staðsteypt og einangrað að utan og klætt að mestu með sléttri og báraðri litaðri álklæðningu.

Skoða söluvef.